Áttaðu Þig á Stöðunni
föstudagur, desember 12, 2003
 
Tveir Ömmerringar gáfu sig á tal við mágkonu mína um daginn, er hún verslunarstjóri hjá Griffli. Voru Ömmerringarnir í þeim erindagkörðum að sækja sér um vinnu um jólin. Aðspurðir um hvort þeir hefðu unnið slíka vinnu áður, þ.e. hvort þeir kynnu á kassa eða slíkt, voru þeir á þeirri skoðun að þar sem að þeir væru nú í Ömmerr, þá ætti það ekki að vera mikið mál.

Já það má með sanni segja að gott krosstré sé ekki of oft brotið.