Áttaðu Þig á Stöðunni
fimmtudagur, desember 09, 2004
 
Ég er hættur að blogga.


 
Leikþáttur.

Lárus: Ásgeir, hvernig gekk þér í Örtölvu-og interneti?
Ásgeir: Úff, alveg ömurlega, þessi kennari sko, 30% af prófinu byggði á alhliða þekkingu á MOSFET-smárum. Hefði átt að taka þátt í þessari kennslukönnun.
Lárus: Nei hættu nú að níða skóinn undan Rögnvaldi!

Öll nöfn í leiksmíð þessari eru helber uppspuni.


þriðjudagur, desember 07, 2004
 
Drottinn eða mammon?
Maður spyr sig.

Væri mjög til í að vera forsætisráherra. Þá gæti ég t.d. tekið ákvörðun um lýsa yfir stuðningi við aðgerðir Mugabes í Zimbabwe, án þess að þurfa nokkra ábyrgð að bera á gjörðum mínum. Gæti kannski aðspurður sagt að þetta hefði verið viljandi gert, eða verið pólitísk ákvörðun. Þá væri málið dautt.


mánudagur, desember 06, 2004
 
Próflestur:

...A properly designed measurement system reproduces all frequency components in a typical input signal. When it does, the system is said to exhibit high fidelity.

Bíddu var það ekki einhver bíómynd?